Ólafur rangar sleppur vel!!!

Það er augljóst að Ólafur Ragnar Grímsson er einn af auðmönnunum. Flestir þeir sem eru fremstir í fjölmiðlunum eru tengdir náið inn í Samfylkinguna sem varði Baugsveldið og fleiri auðkýfinga með Borgarnesræðunni og fleiru. Og nú eiga útrásarvíkingarnir fjölmiðlana þar sem Samfylkingargæðingarnir vinna.

 Já Ólafur Ragnar, Samfylkingin og fjölmiðlarnir gerðu allt til að koma höggi á Davíð Oddsson, þau nýttu m.a. fjölmiðlafrumvarpið í það. Nú getur þjóðin þakkað þeim fyrir að hafa stoppað allt sem Davíð kom nálagt og því sitjum við uppi með handónýta spillta fjölmiðla og útrásarvíkinga sem stjórna umræðunni.

 Þetta getum við þakkað fólkinu sem hefur ekkert annað markmið í pólitík en að væna alla andstæðinga sína um spillingu og koma höggi á Sjálfstæðisflokkinn og Davíð Oddsson.

 Og er það tilviljun að það er ekkert minnst á Ólaf Ragnar Grímsson þessa dagana eins og hann er nú búinn að bregðast sinni skyldu. Hann sagði nei við fjölmiðlalögunum (sem allir vilja hafa núna nema útrásarvíkingarnir), hann sat í einkaþotunum með útrásarvíkingunum og nú síðast og jafnframt það eina sem hann hefur sagt eftir að kreppan skall á að þjóðin þyrfti að standa saman og vera samhent. Þá gefur hann út bók áður en hann lætur af embætti forseta sem virkar eins og bensín á eldinn í að sundra þjóðinni enn frekar.

Já það er greinilegt að Sjálfstæðisflokkurinn er sá eini sem viðhefur spillingu í þessu þjóðfélagi það sjá það allir.


mbl.is Íhugar málsókn gegn Kastljósi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband