Takk fyrir samstarfið

Þá er Jóhann horfinn á brott. Ég vil þakka honum kærlega fyrir samstarfið en undir hans stjórn var ánægjulegt að starfa. Vonandi á íslenska löggæslan eftir að fá að njóta starfskrafta hans á ný. Við þurfum nokkur eintök eins og Jóhann inn í löggæsluna.

Við horfum samt fram á jákvæða tíma hér á Suðurnesjum. Þeir sem eftir eru í yfirstjórninni og unnu náið með Jóhanni viðhöfðu hans stjórnunarhætti og koma vonandi til með að gera svo áfram. Ný yfirstjórn hefur verið ráðin í að koma og halda áfram að efla löggæsluna hér og trúum við og treystum að svo verði.


mbl.is Djúpt snortinn og þakklátur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband